Iv San Bernard
KS Antismell - sjampó
KS Antismell - sjampó
Couldn't load pickup availability
KS Antismell er sjampó sem er sérstaklega þróað til að fjarlægja óþægilega lykt sem getur fylgt sumum hundategundum. Það gerir lyktarsameindir hlutlausar.
Notkunarleiðbeiningar
Gegnbleytið feldinn með volgu vatni og berið sjampóið í feldinn. Vinnið upp froðu og skolið vandlega. Endurtakið þvottinn og látið sjampóið vinna í nokkrar mínútur áður en það er skolað vandlega úr með volgu vatni. Notið að lokum næringu sem hentar feldgerðinni.
Gott að vita
Ef feldurinn þarf fyrst almenna hreinsun má nota sjampó sem hentar feldgerðinni í fyrri þvottinum. Berið síðan KS Antismell óþynnt í feldinn og látið vinna í fimm mínútur. Skolið vandlega og notið næringu á eftir.
Allar feldgerðir þurfa næringu eftir hvern sjampóþvott, óháð lengd feldsins. Við þvottinn fjarlægist hluti af náttúrulegri fitu húðar og felds ásamt óhreinindunum. Næringin hjálpar til við að bæta það upp og styður við eðlilega starfsemi húðarinnar.
Næring getur einnig hjálpað til við að draga úr lykt sem tengist óhóflegri fituframleiðslu og fitu sem þránar á húðinni.
Veljið næringu eftir feldgerð, til dæmis sítrónunæringu fyrir snöggan feld, banananæringu fyrir millisíðan og stríhærðan feld eða eplanæringu fyrir síðan feld.
Deila
