Um mig
Ég er Anna María.
Ég er hundamanneskja og Havanese-ræktandi og með mikinn áhuga á feldhirðu. Hundaprýði er lítil íslensk vefverslun þar sem ég vel vörur með eitt í huga: að þær styðji við heilbrigði og vellíðan hundanna og geri daglega umhirðu einfaldari - bæði fyrir hund og eiganda.
Hvernig þetta byrjaði
Árið 2015 eignaðist ég Huxa, Havanese-rakka sem ég flutti inn frá Danmörku. Þá fór ég að leggja meiri vinnu í feldhirðu og vildi finna vörur sem væru mildar, vandaðar og skiluðu raunverulegum mun í rútínunni. Ég prófaði ýmislegt - þar til ég kynntist Iv San Bernard og fann loks vörur sem pössuðu við það sem ég var að leita að.
Hvað gerðist næst
Sumarið 2019 byrjaði ég að flytja inn vörurnar til endursölu og í nóvember sama ár stofnaði ég vefverslun. Hún gekk upphaflega undir nafninu Iv San Bernard - vefverslun á Íslandi en um mitt ár 2025 fann ég nafnið sem stendur nákvæmlega fyrir það sem ég vil að verslunin standi fyrir - Hundaprýði.
Ræktandi í smáum stíl
Á heimilinu búa nokkrir Havanese-hundar. Það þýðir að ég nota vörurnar sjálf og get talað af reynslu um það sem virkar í daglegu lífi.
Vörurnar
Frá því ég stofnaði vefverslunina hef ég haldið áfram að leita að gæðavörum sem styðja við heilbrigði og vellíðan hundanna og hef smátt og smátt bætt við vöruúrvalið.
Í boði eru vörur frá fjórum vörumerkjum auk þess sem ég er með bursta, greiður, spennur og annað sem gagnast við feldhirðu og daglega umhirðu.
Iv San Bernard
Ítalskt fjölskyldufyrirtæki með yfir 30 ára reynslu. Allar vörur vottaðar sem Safe Pet Cosmetics. Hugsjónin: „Hreinlæti er heilsa, heilsa er fegurð."
Onega
Eistneskt fyrirtæki sem framleiðir gæðavörur úr leðri - ólar, taumar og sýningataumar.
BerryOMG
Finnsk berjafræolía sem er rík af Omega-fitusýrum sem styðja við líffræðilega starfsemi - feld, húð og ónæmiskerfi.
RuttuNuttu
Finnskt fyrirtæki stofnað 2010 af tveim fatahönnuðum með yfir 20 ára reynslu. Vönduð hönnun og góð snið sem sitja vel.
Hundasýningar
Ég hef tekið þátt í hundasýningum frá árinu 2016 og það var í gegnum sýningarnar sem ég lærði að skilja mikilvægi góðrar feldhirðu — þekking sem nýtist jafnt öllum hundaeigendum. Undanfarið hef ég haldið sölubás á hundasýningum HRFÍ þar sem er hægt að hitta mig og sjá vörurnar.
Hvernig er hægt að fá vörurnar
Vörurnar eru sendar um allt land með Dropp eða Íslandspósti, eða hægt er að sækja þær í Litlu Hönnunar Búðina á Strandgötu 19 í Hafnarfirði. Þá eru valdar vörur einnig fáanlegar hjá samstarfsaðilum.