Safn: Feldskipti hvolpa
Hjá mörgum síðhærðum hundategundum tekur við sérstakt feldskiptatímabil þegar mjúkur hvolpafeldurinn víkur smám saman fyrir fullorðinsfeldi. Feldskiptin hefjast oft á aldrinum 6–9 mánaða en tímasetning og lengd tímabilsins eru mismunandi eftir hundategund og einstaklingi. Hjá sumum hundum getur ferlið staðið yfir fram að tveggja ára aldri.
Á þessu tímabili vaxa ólíkar feldgerðir saman og feldurinn getur því flækst mun hraðar en áður. Eigandi sem hefur lítið þurft að hafa fyrir feldinum getur skyndilega fundið nýjar flækjur nánast daglega.
Þetta eru ekki árstíðabundin feldskipti þar sem hundurinn losar undirfeld, heldur eðlileg breyting frá hvolpafeldi yfir í fullorðinsfeld.
Meðferð við feldskiptum
Góð reynsla er af eftirfarandi meðferð frá Iv San Bernard:
1. Þvottur
Þvoið feldinn með Mineral H-sjampói. Látið sjampóið vinna í um þrjár mínútur og skolið síðan vandlega.
2. Næring
Blandið saman Derma Plus og Appelsínu-næringu (2:1) ásamt vatni.
Berið blönduna vel í allan feldinn og niður að húð. Gott er að bursta varlega yfir feldinn með mjúkum bursta svo næringin dreifist jafnt.
Látið vinna í 3–5 mínútur og skolið síðan vandlega.
3. H270
Þerrið feldinn með handklæði og hristið H270-flöskuna vel. Spreyið H270 jafnt í rakan feldinn áður en hann er blásinn og kemdur. H270 er ekki skolað úr.
4. Þurrkun
Blásið feldinn þar til hann er alveg þurr niður að húð og kembið hann í lögum á meðan. Mikilvægt er að skilja ekki eftir raka neðst í feldinum þar sem rakur feldur flækist auðveldlega.
Regluleg feldhirða milli baða skiptir einnig miklu máli. Notið alltaf næringar- eða flækjusprey þegar feldurinn er kemdur. Ef þurr feldur er burstaður án þess að nota sprey getur hann rafmagnast, sem eykur núning og veldur því að hann flækist aftur hraðar.
Feldskipti geta verið krefjandi tímabil, en með reglulegum böðum, nægri næringu og vandlegri þurrkun er hægt að halda flækjum í skefjum og draga úr sliti á nýja feldinum.
-
Mineral H sjampó
Hefðbundið verð Frá 3,030 kr.Hefðbundið verðVerð einingar / perÚtsöluverð Frá 3,030 kr. -
Derma Plus – Nourishing Solution - næring
Hefðbundið verð Frá 4,610 kr.Hefðbundið verðVerð einingar / perÚtsöluverð Frá 4,610 kr. -
Appelsínu næring - styrkjandi virkni
Hefðbundið verð Frá 4,140 kr.Hefðbundið verðVerð einingar / perÚtsöluverð Frá 4,140 kr. -
H270 2-Fasa (Flækjusprey)
Hefðbundið verð Frá 2,470 kr.Hefðbundið verðVerð einingar / perÚtsöluverð Frá 2,470 kr.