Iv San Bernard
Banana næring - millisíður og stríhærður feldur
Banana næring - millisíður og stríhærður feldur
Couldn't load pickup availability
Banananæringin hefur léttan bananailm og er hönnuð fyrir hunda með millisíðan og stríhærðan feld og alla ketti. Hún er mild, mýkir feldinn, viðheldur teygjanleika hans og gerir hann glansandi án þess að breyta náttúrulegum eiginleikum feldgerðarinnar. Feldurinn verður jafnari viðkomu og auðveldari að kemba.
Notkunarleiðbeiningar
Blandið einum hluta næringar við þrjá hluta vatns (1:3). Eftir þvott með sjampói er næringunni nuddað varlega inn í feldinn og burstað yfir hann. Látið vinna í þrjár mínútur og skolið síðan vandlega með volgu vatni.
Gott að vita
Banananæringin varðveitir náttúrulega áferð feldsins og hentar því einnig stríhærðum hundum.
Til að fá meiri virkni úr næringunni má byrja á að hræra hana vel með litlu magni af heitu kranavatni. Gætið þess að blandan hafi kólnað nægilega áður en hún er borin í feldinn.
Einnig má blanda banananæringunni við aðrar næringar eftir þörfum húðar og felds, til dæmis pH Balance fyrir aukinn raka eða til að styðja við húðina, eða PEK-næringu til að draga úr flækjumyndun og styrkja feldinn. Hafðu samband ef þú vilt aðstoð við að velja blöndu.
Til að gefa feldinum meiri fyllingu má blanda litlu magni af PEK-næringu við volgt vatn og úða á þau svæði sem þurfa meiri fyllingu fyrir þurrkun. Þessi létta lokameðferð er ekki skoluð úr.
Deila
