Iv San Bernard
Caviar Green sjampó - prufur
Caviar Green sjampó - prufur
Couldn't load pickup availability
Caviar Green sjampóið hreinsar feldinn með mildum hætti og skilur við hann fullan af lífi. Þykkni úr grænþörungnum Caulerpa lentillifera, einnig þekktum sem jurtakavíar, styrkir feldinn og eykur útgeislun hans. F-vítamín gefur feldinum raka, mýkir hann og gerir hann glansandi.
Sjampóið er sílikonlaust.
Notkunarleiðbeiningar
Berið Caviar Green sjampóið í blautan feldinn, nuddið vandlega inn og skolið vel. Berið síðan Caviar Green næringu í feldinn.
Gott að vita
Allar feldgerðir þurfa næringu eftir hvern sjampóþvott, óháð lengd feldsins. Við þvottinn fjarlægist hluti af náttúrulegri fitu húðar og felds ásamt óhreinindunum. Næringin hjálpar til við að bæta það upp og næra húð og feld.
Undirbúningur fyrir sýningar
Byrjið að nota Caviar Green sjampóið og næringuna að lágmarki 45 dögum fyrir sýningu, þannig að feldurinn hafi verið þveginn með vörunum að minnsta kosti þrisvar fyrir sýninguna. Notið einnig viðeigandi stuðningssprey úr Caviar Green línunni, til dæmis Caviar Green Mix næringarsprey.
100 ml.
Deila
