Skip to product information
1 of 1

Iv San Bernard

Caviar Green næring - prufur

Caviar Green næring - prufur

Hefðbundið verð 1,910 kr.
Hefðbundið verð Útsöluverð 1,910 kr.
Útsala Uppselt
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Caviar Green næringin mýkir feldinn, gefur honum raka og hjálpar til við að endurheimta styrk hans og kraft. Hún inniheldur þykkni úr grænþörungnum Caulerpa lentillifera, einnig þekktum sem jurtakavíar, og F-vítamín. Næringin hjálpar til við að viðhalda rakajafnvægi feldsins og gerir hann glansandi og líflegan.

Notkunarleiðbeiningar
Berið næringuna í feldinn eftir þvott og skolun með Caviar Green sjampói. Látið vinna í 5–10 mínútur og skolið síðan vandlega.

Gott að vita
Til að fá meiri virkni úr næringunni má byrja á að hræra hana vel með litlu magni af heitu kranavatni. Gætið þess að blandan hafi kólnað nægilega áður en hún er borin í feldinn.

Magn vatns má aðlaga að feldinum. Til dæmis má blanda einum hluta næringar við þrjá hluta vatns (1:3).

Næringin er 90% lífbrjótanleg.

Undirbúningur fyrir sýningar
Byrjið að nota Caviar Green sjampóið og næringuna að lágmarki 45 dögum fyrir sýningu, þannig að feldurinn hafi verið þveginn með vörunum að minnsta kosti þrisvar fyrir sýninguna. Notið einnig viðeigandi stuðningssprey úr Caviar Green línunni, til dæmis Caviar Green Mix næringarsprey.

100 ml.

Sjá allar upplýsingar