Iv San Bernard
Talc sjampó - fyrir hvolpa og kettlinga
Talc sjampó - fyrir hvolpa og kettlinga
Couldn't load pickup availability
Talc sjampóið er sérstaklega hannað fyrir feld hvolpa og kettlinga. Það er mjög milt, hreinsar feldinn og skilur eftir mildan ilm. Sjampóið ertir ekki augun.
Notkunarleiðbeiningar
Gegnbleytið feldinn með volgu vatni, nuddið sjampóinu varlega inn í feldinn og látið vinna í þrjár mínútur. Skolið vandlega og berið síðan Talc næringu í feldinn. Vörurnar eru mildar og því er óhætt að þvo feldinn eftir þörfum.
Gott að vita
Húð og feldur hvolpa eru enn að þroskast og veita ekki sömu vernd og hjá fullorðnum hundum. Reglulegur þvottur eftir þörfum og næring eftir hvern sjampóþvott eru því mikilvægur hluti af umhirðunni.
Við þvottinn fjarlægist hluti af náttúrulegri fitu húðar og felds ásamt óhreinindunum. Þar sem fitukirtlar hvolpa eru enn að þroskast er sérstaklega mikilvægt að nota næringu til að bæta það upp og styðja við vernd húðarinnar.
Skoðaðu einnig hvolpastartpakkann.
Deila
