Iv San Bernard
Sil Plus
Sil Plus
Couldn't load pickup availability
Nærandi olía sem þykkir feldinn og gefur aukinn gljáa. Þessi vara er hönnuð fyrir þurran feld og húð, og hjálpar til við að vernda feldinn og húðina gegn þurrki svo feldurinn haldist mjúkur og glansandi.
Notkunarleiðbeiningar: Blandið einni pumpu af Sil Plus í viðeigandi Iv San Bernard sjampó og berið í feldinn og vinnið upp froðu. Einnig má bera efnið beint í þurran eða rakan feld og dreifa því varlega um feldinn.
Gott að vita: Ef þú býrð þar sem pH-gildi vatnsins er mjög hátt þá getur Sil Plus hjálpað til við að jafna sýrustigið á feldi og húð dýranna þegar því er bætt í sjampóið.
Nef og þófar: Sil Plus hentar einnig á nef og þófa þar sem það hjálpar til við að mýkja húðina og vernda hana gegn þurrki.
Tárataumar: Ef það myndast tárataumar hjá hundinum þínum má draga úr mislitun með því að þvo svæðið undir augunum með Diamonds eða Puppy Don't Cry sápustykki. Fyrir eða eftir þurrkun eru settir nokkrir dropar af Sil Plus á fingurna og dreift varlega í þann hluta feldsins sem hefur litast. Sil Plus hjálpar til við að verja feldinn gegn mislitun. Lítið magn dugar en varist að efnið berist í augu.
Snjóklumpar í feldi: Á veturna má nota Sil Plus til að draga úr því að snjór festist í feldinum. Áður en hundurinn fer út í snjó er ráðlagt að setja 2–3 pumpur í lófann, nudda höndunum saman og dreifa efninu í feldinn þar sem snjór festist helst, svo sem á fótum og undir kvið. Þannig má hjálpa til við að draga úr myndun snjóklumpa í feldinum.
Trjákvoða: Nota má efnið til að vinna á trjákvoðu sem hefur festst í feldinum. Efnið er nuddað þar sem trjákvoðan er og svo er greitt í gegnum svæðið.
Deila
