Skip to product information
1 of 4

Show Tech

Show Tech Twin-Flex Slicker Large

Show Tech Twin-Flex Slicker Large

Hefðbundið verð 4,570 kr.
Hefðbundið verð Útsöluverð 4,570 kr.
Útsala Uppselt
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Show Tech Twin-Flex Large er tvíhliða slicker-bursti með sveigjanlegum haus og þægilegu handfangi. Annar púðinn er mjúkur en hinn stífari, svo hægt er að velja þá hlið sem hentar feldinum og verkefninu.

Löngu pinnarnir ná niður í feldinn. Mýkri hliðin hentar við almenna burstun en stífari hliðin við erfiðari flækjur. Snúið burstanum til að skipta um hlið.

Notkun

Kembið með léttum, löngum strokum og forðist að þrýsta pinnunum að húðinni. Ef feldurinn er síður er best að kemba hann í lögum, neðan frá og upp, og halda ókembda hlutanum frá með hinni hendinni. Haldið úlnliðnum beinum.

Á hrokknum feldi má kemba fyrst með feldvextinum og síðan á móti honum með léttum strokum. Á stríhærðum feldi er kembt með feldvextinum og á móti honum ef þörf krefur til að losa lausan feld og flækjur.

Gott að vita

Regluleg böð, næring og kembing hjálpa til við að halda flækjum í skefjum. Þéttar flækjur þarf að losa varlega; forðist að toga eða bursta lengi á sama viðkvæma svæðinu.

Sjá allar upplýsingar