Skip to product information
1 of 1

Iv San Bernard

Cristal Clean froða - fyrir hvítan og svartan feld

Cristal Clean froða - fyrir hvítan og svartan feld

Hefðbundið verð 4,790 kr.
Hefðbundið verð Útsöluverð 4,790 kr.
Útsala Uppselt
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Cristal Clean froðan fjarlægir gula slikju úr hvítum feldi og rauðan tón úr svörtum feldi. Hana má nota í allan feldinn eða til að vinna á litabreytingum á afmörkuðum svæðum.

Notkunarleiðbeiningar
Hristið brúsann vel. Berið froðuna í blautan feldinn, nuddið inn og kembið í gegnum feldinn. Látið vinna í 5 mínútur. Skolið vandlega og þurrkið feldinn.

Til að ná sem bestum árangri er froðan notuð eftir þvott með Cristal Clean sjampói og næringu.

Gott að vita
Cristal Clean vörurnar vinna smám saman á litabreytingum í feldinum. Mikilvægt er að viðhalda góðu rakajafnvægi og nota næringu til að hjálpa til við að vernda feldinn gegn frekari litabreytingum.

PEK næring hjálpar til við að þétta hárhyrnið og slétta yfirborð feldsins.

Einnig má blanda Cristal Clean froðunni í næringarblöndu fyrir formeðferð með Close-Open-Close aðferðinni, þar sem feldurinn er nærður fyrir sjampóþvott og aftur að honum loknum.

250 ml.

Sjá allar upplýsingar