Iv San Bernard
Cristal Clean Sjampó - fyrir hvítan og svartan feld - prufur
Cristal Clean Sjampó - fyrir hvítan og svartan feld - prufur
Couldn't load pickup availability
Cristal Clean sjampóið er sérstaklega hannað til að fjarlægja gula slikju úr hvítum feldi og rauða slikju úr svörtum feldi. Það inniheldur náttúruleg hráefni sem vinna með mildum hætti án þess að erta húðina.
Notkunarleiðbeiningar
Gegnbleytið feldinn með volgu vatni og berið sjampóið beint í feldinn. Látið vinna í þrjár mínútur og skolið vandlega. Notið síðan Cristal Clean næringu.
Forðist að sjampóið berist í augun. Ef það gerist skal skola strax með ríkulegu magni af volgu vatni.
Gott að vita
Allar feldgerðir þurfa næringu eftir hvern sjampóþvott, óháð lengd feldsins. Við þvottinn fjarlægist hluti af náttúrulegri fitu húðar og felds ásamt óhreinindunum. Næringin hjálpar til við að bæta það upp.
Þegar feldurinn hefur upplitast er sérstaklega mikilvægt að næra hann vel. Litarefni feldsins geta oxast, líkt og járn þegar það ryðgar, og það getur komið fram sem litabreyting. Með því að halda feldinum í góðu ástandi og þétta hárhyrnið má hjálpa til við að vernda hann gegn frekari upplitun.
Cristal Clean línan vinnur smám saman á upplituninni. Til að styðja enn betur við feldinn má blanda PEK-næringu við Cristal Clean næringuna. PEK hjálpar til við að þétta hárhyrnið og slétta yfirborð feldsins.
Notið vöruna á óskemmdan feld.
100 ml.
Deila
